Arion banki býður hagstæð íbúðalán fyrir allt að 80% af markaðsvirði eignar. Ef lánsupphæðin fer yfir 70% af fasteignamati eða kaupverði / verðmati eða því sem lægra reynist þá hækka vextir af þeim hluta lánsins.
Lánstími
Íbúðalán I er til allt að 40 ára. Lánstími á Íbúðaláni II er 5 til 25 ár.
Lánsfjárhæð og veðhlutfall
Á Íbúðalán I er gerð krafa um 1. veðrétt og hámarksveðhlutall er 70% af fasteignamati eða kaupverði / verðmati eða því sem lægra reynist.
Íbúðalán II fer á 2. veðrétt á eftir Íbúðaláni I og hámarksveðhlutfall er 80%.
Hámarks lánshlutfall getur þó ekki orðið hærra en sem nemur samanlögðu brunabótamati og lóðamati íbúðarhúsnæðis.
Vextir og afborganir
Verðtryggt lán getur verið með föstum vöxtum út lánstímann, föstum vöxtum fyrstu 5 árin eða breytilegum vöxtum, bæði á Íbúðaláni I og II.
Kostnaður
- Lántökugjald er 1%.
- Þinglýsingargjald er skv. verðskrá Sýslumannsembættis.
Uppgreiðslugjald
Uppgreiðslugjald er á lánum með föstum vöxtum fyrstu 3 eða 5 árin, eða á meðan lán er á föstum vöxtum. Á lánum með föstum vöxtum í hluta eða allan lánstímann og útgefnum 1. nóvember 2013 eða síðar er uppgreiðslugjald 1%, með þeirri undantekingu að heimilt er að greiða umframgreiðslur inn á lán allt að 1.000.000 kr. á ársgrundvelli án uppgreiðslugjalds.
Íbúðalán á breytilegum vöxtum er án uppgreiðslugjalds.
Uppgreiðslugjald á lánum útgefnum fyrir 1. nóvember 2013 er almennt 2%.
Önnur gjöld eru samkvæmt verðskrá Arion banka á hverjum tíma.
Hafðu samband
Hafðu samband við fjármálaráðgjafa sem fer yfir málin með þér.